Samantekt um þingmál

Landlæknir og lýðheilsa

414. mál á 152. löggjafarþingi.
Heilbrigðisráðherra.

Markmið

Að færa ábyrgð skimunarskrár frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins til embættis landlæknis.

Helstu breytingar og nýjungar

Útfæra á ákvörðun heilbrigðisráðherra um að fela embætti landlæknis rekstur skimunarskrár en skimunarskráin er nú á ábyrgð Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Skimunarskrá er gagnagrunnur og upplýsingakerfi sem inniheldur persónugreinanleg gögn um boð í krabbameinsskimun, mætingu og niðurstöður skimana allra sem komið hafa í skimanir frá því rafræn skrá var tekin í notkun haustið 2006.

Breytingar á lögum og tengd mál

Lög um landlækni og lýðheilsu, nr. 41/2007.

Kostnaður og tekjur

Ekki er gert ráð fyrir áhrifum á ríkissjóð.

Afgreiðsla

Samþykkt óbreytt.


Síðast breytt 24.02.2023. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Unnið af starfsfólki upplýsinga- og rannsóknaþjónustu Alþingis.

Um samantektir

Samantektir um þingmál hafa verið birtar á vef Alþingis síðan á 141. þingi (2012-2013). Markmiðið er að setja fram í stuttu máli greinargóðar upplýsingar um þingmál og að tengja í efni sem gæti skýrt það frekar.

Samantektir eru einkum unnar um stjórnarfrumvörp en upplýsingum um önnur mál er bætt við eftir þörfum. Fylgst er með máli frá því að það kemur fram á þinginu og upplýsingum bætt við eftir því sem fram vindur. Þær eru að mestu fengnar úr texta frumvarps og umsagna, en tengt er í efni á öðrum vefjum eftir því sem tilefni er til. Tenglar í efni sem ekki er á vef Alþingis geta breyst og eru birtir án ábyrgðar. Umfjöllunin á að vera óhlutdræg en ekki er hægt að gera ráð fyrir að hún sé tæmandi. Samantektin er ekki hluti af þinglegri meðferð né formlegum skjölum þingmálsins.

Allar ábendingar og athugasemdir eru vel þegnar og má senda þær á netfangið rannsoknathjonusta@althingi.is.